SUÐURGATA 44

Framúrskarandi íbúðir í hjarta Hafnarfjarðar

Í heildarmynd Suðurgötunnar eru húsin flest í eldri kantinum en hafa verið gerð upp af mikilli alúð og natni. Við hönnun nýbyggingarinnar var horft til þessara fallegu húsa til að halda í samfellda götumynd.

Nærri er Hafnarfjarðarhöfn þar sem er fjöldi sjarmerandi gönguleiða og miðbærinn sem iðar af lífi með huggulegum verslunum og veitingahúsum. Rétt hjá er Suðurbæjarlaug, kirkjan, skólar, verslanir og veitingastaðir auk þjónustufyrirtækja.

Íbúðirnar eru bjartar og búnar einstaklega fallegum ítölskum innréttingum. Í bílakjallara á hver íbúð einkastæði en möguleiki er að kaupa aukastæði.

Skoðaðu íbúðir
SUÐURGATA 44

Heimili í fallegu og grónu hverfi

Íbúðir fjölbýlishússins eru 13 og eru frá tveggja herbergja íbúðum til fjögurra herbergja þakíbúða. Stærð íbúðanna er frá 60,6 fermetrum til 171,4 fermetra. Hugað er vel að því að íbúðirnar njóti góðs flæðis birtu og hluti glugganna er gólfsíður í því augnamiði. Í íbúðunum eru fallegar ítalskar innréttingar og borðplöturnar eru úr kvars- steini.

Sýningaríbúðir
Innréttingar hannaðar af Parka

Frá ítalska framleiðandanum Cubo design, þekktar fyrir notagildi og gæði.

Vel búið að garðinum

Í garðinum er gróðurhús sameiginlegt fyrir íbúana. Sérafnotareitir eru með stórum útiflísum og afstúkaðir með blómakerjum úr kortenstáli.

Bílakjallari

Öllum íbúðum í fjölbýlishúsinu fylgir einkastæði í bílakjallara. Einnig eru rúmar og góðar geymslur ásamt hjólageymslu í kjallara hússins.

Hugað að hverju atriði

Við hönnun og byggingu húsanna var hugað vel að öllu sem snýr að gæðum og endingu fyrir íbúa.

SUÐURGATA 44

Umhverfi

Það eru einungis nokkur skref niður að Hafnarfjarðarhöfn og stutt í góðar göngu- og hjólaleiðir.

Litast um í nýja Kató

Vel heppnuð þétting byggðar við Suðurgötuna í Hafnarfirði hefur vakið verðskuldaða athygli. Fulltrúar Hafnarfjarðarbæjar heimsóttu hið nýja Kató, snoturt fjölbýli og tvö einbýlishús sem falla vel inn í götmyndina.

SUÐURGATA 44

Hönnun innblásin af umhverfinu

Við hönnun húsanna var lagt upp með að útlit þeirra félli vel inn í götumyndina sem fyrir var. Húsin standa gegnt St. Jósefsspítala sem er glæsilegt hús með ríka sögu. Sama á við um lóðina, en þar var áður skóli St. Jósefssystra og var það hús kallað Kató af Hafnfirðingum.

HÖNNUN
Skoða meira